sundlaugar.is
Borði

Sundmót í Sundhöll Reykjavíkur Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Vegna sundmóts yngri deilda verður laugin lokuð milli klukkan 09.00 og 12.00 laugardaginn 18. Febrúar. Eftir sem áður verður opið í potta og sturtur.

 
Sundlauganótt 2012 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Sundlauganótt 2012 - www.vetrarhatid.isSundlauganótt 2012 - www.vetrarhatid.is

Sundlauganótt verður haldin í fyrsta sinn á Vetrarhátíð laugardaginn 11. febrúar. Í boði er fjölbreytt dagskrá í Laugardalslaug, Árbæjarlaug, Sundhöll Reykjavíkur og á Ylströndinni. Frítt er í sund frá kl. 20:00 til 24:00 laugardagskvöldið 11. febrúar. Sjá meira á www.vetrarhatid.is

 
Aukinn afgreiðslutími á Ylströnd Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Frá www.itr.is:

Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að auka þjónustu við sjósundfólk á Ylströnd, með því að bæta við opnun milli klukkan 11.00 og 13.00. Við erum mjög ánægð að sjá hversu margir gestir koma á ströndina í hverri viku og vonum að þessi breyting verði til þess festa þessa spennandi útiveru enn betur í sessi hjá Reykvíkingum.

 
Heitir pottar í Laugardalslaug lokaðir Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Frá mánudeginum 30. janúar til 3. febrúar verða allir heitir pottar í Laugardalslaug lokaðir.

 
Eimbað tekið í notkun í Grafarvogslaug Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Nýtt eimbað verður opnað í Grafarvogslaug á föstudag og er það byggt á grunni eldra eimbaðs sem orðið var tímabært að endurnýja.  Gengið er inn í eimbaðið úr glerskála við heitu pottana og er útsýni úr eimbaðinu að sundlauginni en glerveggur skilur að eimbað og glerskálann.  Eimbaðið er að öðru leyti steinsteypt og verður klætt utan í samræmi við sundlaugarbygginguna.  Gólf og veggir eimbaðsins eru flísalagðir og loft er málað. Gluggar eru úr áli með öryggisgleri í þaki, hurðum og gluggavegg að eimbaði. Nánar á www.reykjavik.is

 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

page 1 of 11



Deila |

Flöskuskeyti Póstlisti

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Ég er í forsvari eða starfa fyrir sundlaug.



Borði
Borði
swimming in iceland on Facebook

Síðustu athugasemdir

Hæsta meðaleinkunn

Síðast breytt

Mest skoðað


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins - senda inn frétt - tilkynna villu