| Ylströnd Nauthólsvík |
|
|
|
"The Beach of Reykjavik" Heimilisfang Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Afgreiðslutími Vetur: Mánudagar 17-19
Verð Tenglar
Auka upplýsingar Ylströndin er í Nauthólsvík þar sem sjóbaðstaðurinn var áður. Þarna er veitt heitu vatni úr hitaveitunni í tvo potta og auk þess í sjóinn í víkinni en hún hefur verið afmörkuð með garði að austanverðu til að takmarka vatnsskiptin. Víkinn er þó opin út í voginn og gætir þar flóðs og fjöru og blandast sjórinn við heita vatnið. Þarna myndast 1.500-4.000 m2 stórt lón allt eftir því hvort er flóð eða fjara. Heiita vatnið er ekki blandað klór. Í fjörunni er aðfluttur skeljasandur. Ágæt aðstaða er til fataskipta í veglegu þjónustuhúsi. Í húsinu er einnig sjoppa. Gert er ráð fyrir því að fólk taki með sér fötin út eftir fataskiptin en þó er hægt að fá þau geymd gegn gjaldi. Annar potturinn er á tröppunum framan við þjónustuhúsið. Hitastig hans er 38 °C. Hinn potturinn er í flæðarmálinu og er hitastig í honum 25-30 °C. Sjálf víkin hefur breytilegt hitastig eða frá umhverfishita sjávarins upp í um 28 °C. Dýpi í pottunum er um 0,5-0,7 m en dýpi í víkinni þar sem dýpst er er allt að 3,8 m þegar flóð er. Svæðið er alltaf opið en þjónustuhúsið aðeins á sumrin, frá 15. maí til 15. september á milli kl 10:00 og 20:00. Utan opnunartíma rennur ekkert heitt vatn í pottana og víkina. Sumarið 2000 var tekin í notkun glæsileg Ylströnd í Nauthólsvík. Reistir voru voldugir sjóvarnargarðar og inn fyrir þá dælt gullnum skeljasandi. Innan garðanna er fallegt lón þar sem kaldur sjór og heitt vatn renna saman í eitt. Þessar aðstæður minna meira á strendurnar við sægrænt Miðjarðarhafið en vík í nyrstu höfuðborg heims við Norður-Atlantshafið. Markmiðið með þessum framkvæmdum var að gera Nauthólsvík að fjölbreyttu útivistarsvæði þar sem lögð er áhersla á útiveru, sólböð, sjóböð og siglingar líkt og tíðkaðist hér fyrr á árum. Sumarið 2001 var tekin í notkun þjónustumiðstöð á Ylströndinni. Þar er búnings- og sturtuaðstaða fyrir baðgesti og þar er jafnframt hægt að kaupa léttar veitingar. Fyrir framan þjónustumiðstöðina er löng setlaug sem er um 30°-35°C heit. Í flæðarmáli strandarinnar er uppstreymispottur til hitunar á lóninu sem jafnframt er íverustaður. Þessi framkvæmd hefur mælst gríðarlega vel fyrir og ekki hægt að segja annað en að Ylströndin hafi slegið í gegn eftir að hún var opnuð. Ófáir hafa lagt leið sína þangað og flatmagað í sólinni á sólríkum sumardögum. Góð aðsókn hefur verið að Ylströndinni og koma að meðaltali 120.000 gestir á hverju ári á ströndina. Það er því óhætt að segja að ströndin hafi fest sig í sessi sem paradís í borgarlandinu sem laðar að jafnt innlenda sem erlenda gesti. Reglur Bláflaggið
Powered by !JoomlaComment 3.26
3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved." |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 12. apríl 2012 11:58 | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Flöskuskeyti Póstlisti |
|










