sundlaugar.is

Metaðsókn í Vatnaveröld Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Um 2500 manns heimsóttu Vatnaveröld um helgina og hafa aldrei fleiri gestir sótt laugina á einni helgi. Fjölmennasti hópurinn tengdist Nettómótinu í körfu, en öll börn fá frítt í laugina auk liðsstjóra og þá nýttu foreldrar sér að heimsækja laugina á milli leikja. Um 1300 manns komu á laugardeginum og 1200 á sunnudeginum.

 
Laugardalslaug lokuð 8.-9. mars Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Vegna framkvæmda við búningsklefa verður Laugardalslaug lokuð 8. og 9. mars.

Opnað verður aftur sunnudaginn 10. mars kl. 08:00 og þá gerist eftirfarandi.

  • Afgreiðsla færist aftur í nýja hluta (Nýju afgreiðslu)
  • Ný uppgerður klefi verður tímabundið kvennaklefi
  • Karlaklefar færast í báða útiklefa
  • Rafrænar skápalæsingar verða á kvennaböðum
 
Lokað í Breiðholtslaug og Árbæjarlaug Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Miðvikudaginn 13. febrúar er Breiðholtslaug og Árbæjarlaug lokuð vegna endurmenntunar starfsmanna.

 
Líkamsræktarstöð við Breiðholtslaug Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Borgarráð samþykkti á fundi sínum 7. febrúar tillögu borgarstjóra þess efnis að hefja undirbúning við að koma upp líkamsræktarstöð við Breiðholtslaug.

Í greinargerð með tillögunni er m.a. vísað til fundar borgarráðs frá 26. júlí í fyrra þar sem samþykkt var tillaga um að auglýsa skyldi eftir samstarfsaðilum um uppbyggingu heilsuræktar á svæði Breiðholtslaugar við Austurberg, en engin líkamsræktarstöð er í Efra-Breiðholti. Slík uppbygging í tengslum við Breiðholtslaug hefur áður verið auglýst í kjallararými við Breiðholtslaug, svonefndum Undirheimum, en horfið var frá þeirri niðurstöðu þar sem húsnæðið þótti ekki henta.

Nánar...
 
Sundlauganótt á Vetrarhátíð Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Vesturbæjarlaug - Laugardalslaug - Breiðholtslaug - Ylströndin.

Frítt inn milli klukkan 18:00 og 24:00 á fjölmarga viðburði í sundlaugum Reykjavíkur á Vetrarhátíð Laugardaginn 9. febrúar.

Nánar á www.vetrarhatid.is

 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

page 3 of 23



Deila |

Flöskuskeyti Póstlisti

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Ég er í forsvari eða starfa fyrir sundlaug.



Borði
Borði
swimming in iceland on Facebook

Síðustu athugasemdir

Hæsta meðaleinkunn

Síðast breytt

Mest skoðað


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins - senda inn frétt - tilkynna villu