|
Takmörkun á opnun Sundhallar Reykjavíkur næstu daga |
|
|
|
Dagana 30. maí til 2. júní verða takmarkanir á opnun Sundhallar Reykjavíkur vegna sundmóts. Opið verður í potta og sturtur allan daginn. Lokun laugar verður sem hér segir:
|
|
Nánar...
|
|
Atvinnulausir fá áfram frítt í sund |
|
|
|
Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í gær tillögu um að atvinnulausir Reykvíkingar og fólk sem nýtur fjárhagsaðstoðar hjá Reykjavíkurborg fái áframhaldandi endurgjaldslausan aðgang að sundstöðum borgarinnar og frítt bókasafnskort út árið 2012 en eldri samþykkt rann út í árslok 2011. Áætlaður kostnaður er 5 milljónir króna. Það var Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri Grænna, sem lagði tillöguna fram.
|
|
Nánar...
|
|
EM 50 hópurinnn okkar er kominn á áfangastað eftir langt ferðalag. Með íslenska hópnum eru Jacky Pellerin nýráðinn landsliðsþjálfari SSÍ, Mads Claussen er honum til aðstoðar.
|
|
Nánar...
|
|
lokað í sundlaug Egilsstaða vegna þrifa |
|
|
|
Sundlaugin EgilsstöðumSundlaugin á Egilsstöðum verður lokuð 23.- 25. maí vegna árlegs viðhalds og viðgerða. Það er verið að gera allt klárt fyrir sumarið og allt verður þrifið hátt og lágt, t.d. búnings- og baðklefar. Einnig verður sundlaugin tæmd og gert við það sem þarf.
|
|
Vegna bilunar í borholu(heita vatns) er sundlaug og vaðlaug ekki í notkun en pottur, gufa og þreksalur er opinn. Unnið er að viðgerðum og stefnt að því að opna 1.júní. Þangað til er opnunartíminn eftirfarandi: Mán-fim: kl. 07:00-8:30 og 17:00-19:00 Fös: kl. 0.700-8.30 Lau: kl.10:00-14:00 |